Senn líður að fermingum á Vesturlandi sem og annars staðar. Í Skessuhorni sem kemur út í dag er að finna efni úr ýmsum áttum sem allt tengist fermingum á einhvern hátt. Viðtöl við fermingarbörn sem hafa skemmtilegar sögur að segja af deginum stóra, umfjöllun um fermingartískuna, myndir frá fótboltakappleik fermingarbarna og starfsfólks Akraneskirkju, spjall við ljósmyndara og viðtal við móður sem hefur fermt sjö börn og gefið þeim öllum hest í fermingargjöf svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Síðast en ekki síst er að finna lista yfir þau fermingarbörn sem fermast munu á Vesturlandi þetta árið. Listinn er þó ekki að öllu leyti tæmandi þar sem ekki hafa enn verið dagsettar fermingar í Stykkishólmsprestakalli og í Dalasýslu.
|