Snæfell var fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 21:16, og bætti enn við forystuna með góðum kafla, komust í tíu stiga forskot, en Ólafur Sigurðsson ÍR-ingur setti niður þrjá þrista með skömmu millibili og sá til þess að halda sínum mönnum inni í leiknum. Snæfell náði ekki að auka forskotið í leikhlutanum og staðan í hálfleik var 43:38.
Sama þróun hélt áfram í leiknum, Snæfell með frumkvæðið en munurinn aldrei mikill. ÍR-ingum tókst síðan snemma í síðasta fjórðungi að jafna metin í 65:65. Jafnt var síðan um stund þangað til Snæfell náði forystunni að nýju og héldu fengnum hlut undir lokin.
Justin Shouse var bestur í liði Snæfells, skoraði 25 stig og átti 8 stoðsendingar, Slobodan Subasic gerði 16, Hlynur Bæringsson 12, Sigurður Þorvaldsson 12, Jón Ólafur Jónsson 10, Magni Hafsteinsson 7 og Anders Katholm 5. Hjá ÍR var Tahirou Sani stigahæstur með 19, Hreggviður Magnússon skoraði 18, Nate Brown 14 og Sveinbjörn Classen 12.
|