Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 22:36 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Óska eftir rekstraraðila að sláturhúsi

19. mars 2008

Í tengslum við nauðasamninga vegna Borgarnes kjötvara ehf., sem greint er frá í frétt hér á síðunni í gær, hefur verið ákveðið að hinir nýju eigendur reki ekki stórgripasláturhúsið í Brákarey áfram. Eins og kunnugt var starfsmönnum sláturhússins sagt upp störfum fyrr í vetur og hefur engin stórgripaslátrun verið síðan í Borgarnesi. Gunnar Þ. Gíslason stjórnarformaður Sundagarða hf. sem eru hinir nýju eigendur BK segir að þeir auglýsi hér með eftir aðila til að opna og reka sláturhúsið.  Eins og staðan er í dag er ekkert sláturhús með leyfi til slátrunar á öllu Vesturlandi. Gunnar Þ. Gíslason segir að hann hafi fundið fyrir áhuga á því að þessi þjónusta yrði áfram á svæðinu. „Við auglýsum því hér með eftir aðila til að opna sláturhúsið að nýju og reka það. Við erum með leigusamning á húseigninni til tveggja ára og leyfið og tæki til sláturnar eru til staðar. Ég á ekki von á öðru en eigendur væru til í að framlengja þann samning ef einhverir framtaksamir einstaklingar sýndu áhuga á þessum rekstri.“

 

Aðspurður hvort einhverjir myndu kaupa afurðir frá svona sláturhúsi sagði Gunnar að hann teldi allar líkur á því að afurðastöðvar myndu gera það. „Ef við höldum ekki áfram með grillkjötið sem Borgarnes kjötvörur seldu, myndum við ekki kaupa lambakjöt, en án efa værum við tilbúnir að kaupa nautakjöt frá þeim sem myndu slátra í Brákarey. Nú er bara að hvetja fólk til að skoða þetta og hafa samband,“ sagði Gunnar.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 22:30  A 9  7°C
Akrafjall 22:20  V 1  6°C
Hafnarfjall 22:20  N 4  7°C
Vatnaleið 22:30  SSA 4  5°C
Hraunsmúli 22:30  SA 2  6°C
Fróðárheiði 22:20  SA 6  4°C
Brattabr. 22:20  SSV 5  5°C
Holtav.h. 22:30  SSV 7  5°C
Laxárdalsh. 22:20  VSV 3  5°C
Svínad. 22:20  SSA 2  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent