Clapton-félag Borgarfjarðar, sem saman stendur af nokkrum einlægum aðdáendum gítarsnillingsins Eric Clapton, stendur fyrir tónleikum í Fossatúni 30. mars á afmælisdegi goðsins. Félagsmenn hafa haldið upp á afmæli Claptons síðan hann varð fimmtugur árið 1995. Að þessu sinni var ákveðið að bjóða upp á lifandi blústónlist. Sindri Arnfjörð er einn félagsmanna í Clapton-félagi Borgarfjarðar. Hann segir að hugmyndin að tónleikunum hafi eiginlega kviknað í óformlegu spjalli við Gunnar Ringsted gítarleikara fyrir nokkru síðan, en Gunnar var á sínum tíma í hljómsveit sem sérhæfði sig í flutningi laga eftir Clapton. Málið hafi verið rifjað upp eftir áramótin og síðan í febrúar hefur hljómsveitin Óvissa með Gunnari og félögum æft stíft gamla takta, en þeir hafa ekki starfað saman síðan árið 1971.
|
„Það er meiningin að vera með rólegri lög Claptons á þessum tónleikum, svona blús. Þeir félagar segjast alveg treysta sér til að halda úti heilu kvöldi en húsið opnar klukkan 20 og tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Það verður spilað töluvert fram eftir kvöldinu og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir, eins og þar stendur.“ Því er við þetta að bæta að alltaf hefur verið góð stemning á Clapton-kvöldum félagsins svo enginn ætti að vera svikinn af því að bregða sér í Fossatún 30. mars. Miðaverð er krónur 1.500 og innifalið eru kökur og kaffi.
|