 |
Sigurlið Grundaskóla. | Grundaskóli á Akranesi bar sigur úr býtum í æsispennandi keppni í Skólahreysti í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi í gær. Auk Grundaskóla kepptu lið frá Varmalandsskóla, Heiðarskóla, Grunnskóla Húnaþings vestra, Grunnskólanum í Stykkishólmi, Grunnskólanum í Búðardal, Brekkubæjarskóla og Grunnskóla Snæfellsbæjar. Lið Grundaskóla skipa þau Árni Steinar Guðnason, Lóa Guðrún Gísladóttir, Birta Stefánsdóttir og Arnór Freyr Símonarson. Þáttur um keppnina verður sýndur á SkjáEinum næstkomandi þriðjudag kl. 20.10.
|
Gríðarleg stemning var í íþróttahúsinu meðan á keppni stóð enda fjölmenntu stuðningsmenn allra liða á svæðið. Jónsi úr hljómsveitinni Í svörtum fötum sá um að kynna keppnina og halda uppi stuðinu. Það voru Grundaskóli og Heiðarskóli sem slógust um fyrsta sætið alla keppnina. Heiðarskóli sigraði í þremur keppnisgreinum sem verður að teljast frábær árangur, ekki síst með tilliti til smæðar skólans. Lið Grundaskóla sigraði í einni grein en hafnaði hvergi neðar en í þriðja sæti. Það tryggði liðinu sigur. Í næsta tölublaði Skessuhorns verður að finna bæði myndir og nánari umfjöllun um keppnina.
Úrslitakeppnin í Skólahreysti fer fram þann 17. apríl næstkomandi í Laugardalshöll. |