Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 11:19 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Opna Borgarfjarðarmótið hefst í næstu viku

1. apríl 2008

Opna Borgarfjarðarmótið í brids, árlegt samstarfsverkefni bridsfélaganna í Borgarfirði og Akranesi, hefst miðvikudaginn 9. apríl klukkan 20. Um tvímenningskeppni er að ræða og eru allir áhugasamir spilarar velkomnir, hvort sem þeir eru innan eða utan þessara félaga. Fyrsta kvöldið verður spilað á Módel Venusi í Hafnarskógi. Annað kvöldið verður mánudaginn 14. apríl í Logalandi og síðasta kvöldið verður spilað í Skrúðgarðinum við Kirkjubraut 8-10 á Akranesi föstudaginn 18. apríl.

 

 

Úrslit í mótum BA

Á vettvangi bridsfélaganna er það helst að frétta að aðalsveitakeppni Bridsfélags Akraness lauk fyrir skömmu. Þar sigraði sveit Karls Ó Alfreðssonar með 95 stig, en með Karli spiluðu þeir Alfreð Alfreðsson, Alfreð Viktorsson og Hallgrímur Árnason. Í öðru sæti varð sveit Inga Steinars Gunnlaugssonar með 90 stig. Með Inga Steinari í sveit voru þeir Ólafur Grétar Ólafsson og bræðurnir Þorvaldur og Guðjón Guðmundssynir. Í þriðja sæti með 89 stig var sveit Tryggva Bjarnasonar með 89 stig. Ásamt Tryggva spiluðu í sveitinni Þorgeir Jósefsson, Bjarni Guðmundsson og Karl Alfreðsson. Nú er eitt kvöld eftir af tvímenningskeppni BA og leiðir formaðurinn, Einar Guðmundsson mótið ásamt Sigurgeiri Sveinssyni með 45 stig. Í öðru sæti eru Alfreð Alfreðsson og Karl Ó Alfreðsson með 42 stig. Mótinu lýkur nk. fimmtudag.

 

Fara í fjarnám

Hjá Bridsfélagi Borgarfjarðar er það helst að frétta að næstkomandi mánudag setjast 16 félagar á skólabekk og munu næstu fjórar vikur læra brids í fjarnámi hjá Guðmundi Páli frá Bridssambandi Íslands. Þorvaldur Pálmason hefur samið námsefnið, en hann er gamall félagi í BB. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur sem lengra komna.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 11:10  V 2  11°C
Akrafjall 11:10  ASA 5  14°C
Hafnarfjall 11:10  N 4  12°C
Vatnaleið 11:10  NV 5  9°C
Hraunsmúli 11:10  NNA 7  13°C
Fróðárheiði 11:10  NNV 6  8°C
Brattabr. 11:10  N 5  10°C
Holtav.h. 11:10  N 7  10°C
Laxárdalsh. 11:10  NNA 7  11°C
Svínad. 11:10  NNA 5  13°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent