Starfsumhverfi bænda hefur líklega aldrei breyst eins mikið og á síðustu árum. Búum hefur fækkað og þau stækkað. Hagræðingin sem felst í fækkun búanna er ekki sársaukalaus, því ný og tæknivædd bú kosta sitt og þegar fjármagn er dýrt getur það reynst erfitt að reka skuldsett bú. Í augnablikinu eru því ýmsar blikur á lofti hjá íslenskum kúabændum, ekki einvörðungu að verð á helstu aðföngum eins og áburði, kjarnfóðri, olíu og ýmsu fleiru hefur hækkað gríðarlega.
Í nýjasta tölublaði Skessuhorns er rætt við Harald Benediktsson bónda á Vestra Reyni og formann Bændasamtaka Íslands um þessar miklu breytingar á högum bænda.
|