Á aðalfundum Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands og Ferðamálasamtaka Vesturlands sem haldnir voru í Stykkishólmi í gær var lýst stuðningi við hugmyndir um stofnun fyrirtækis um rekstur Markaðsstofu Vesturlands. Hugmyndin snýst um að stofna fyrirtæki um markaðsmál ferðaþjónustu í landshlutanum og hefur undirbúningshópur á vegum Vaxtarsamnings Vesturlands verið að störfum í vetur til að leggja drög að stofnuninni. Með þessu fyrirkomulagi er vonast til að einfalda megi skipulag í markaðsmálum og ekki síst sameina krafta fólks sem starfar í ferðaþjónustu á Vesturlandi þannig að koma megi skýrari verkaskiptinu og vinnslu allra verkefna innan þessa geira.
|