Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 01:50 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Aðeins fjórir af HB-fólkinu hafa ráðið sig í vinnu

10. apríl 2008

Einungis tvær konur og tveir karlmenn hafa ráðið sig í nýja vinnu af þeim rúmlega þrjátíu sem ekki fengu endurráðningu hjá HB Granda vegna uppsagnanna í byrjun árs.

Uppsagnarfrestur starfsfólksins nær til 1. júní næstkomandi. Langstærstur hluti hópsins er konur, um 25 talsins. Að sögn Skúlínu Guðmundsdóttur trúnaðarmanneskju starfsmanna í vinnslunni á Akranesi virðist sem langflestir séu að líta í kringum sig og ætli að taka sér gott sumarfrí þegar uppsagnarfrestinum lýkur, nýti þá þann tíma til að finna sér vinnu.

 

Skúlína segir að nokkrar kvennanna séu komnar vel á sjötugsaldur og allt eins víst að þær kjósi að fara út af vinnumarkaðnum. Hluta starfsfólks hefur verið boðin vinna hjá HB Granda í Reykjavík og að sögn Skúlínu eru það einkum erlendu konurnar í hópnum sem eru að skoða það. Annars séu ekki miklir atvinnumöguleikar fyrir konur hér á svæðinu. Sérstaklega sé lítið af hlutastörfum í boði, en margar þeirra kvenna sem vinna í HB eru þar í hlutastarfi.

Eins og komið hefur fram í fréttum var konum í  vinnslunni á Akranesi boðið í heimsókn á Hrafnistu, bæði í Hafnarfirði og Reykjavík. Skúlína sagði að nokkrar þeirra væru ekki fráhverfar því að skoða vinnu í Hrafnistu í Reykjavík og einnig hjúkrunar- og dvalarheimilinu Víðinesi á Kjalarnesi. Hinsvegar finnist þeim oft langt að sækja vinnu til Hafnarfjarðar. Í námskeiðahaldi hefur verið boðið upp á sjálfstyrkingarnámskeið með Jóhanni Inga Gunnarssyni sálfræðingi, sem Skúlína sagði að hefði verið mjög skemmtilegt og gagnlegt. Einnig væri áformað í samstarfi við Atvinnumiðlun að halda námskeið í greiningu áhugasviðs. „Annars má búast við að málin fari að skýrast þegar líður nær orlofstímanum í byrjun maí,“ segir Skúlína Guðmundsdóttir trúnaðarmaður.

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 01:40  ASA 5  0°C
Akrafjall 01:40  A 2  1°C
Hafnarfjall 01:40  ANA 1  3°C
Vatnaleið 01:40  ASA 3  0°C
Hraunsmúli 01:40  A 4  -1°C
Fróðárheiði 01:40  ASA 4  -0°C
Brattabr. 01:40  SSA 1  -1°C
Holtav.h. 01:40  S 2  -1°C
Laxárdalsh. 01:40  A 4  -1°C
Svínad. 01:30  ANA 0  -0°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent