„Okkur finnst alveg nauðsynlegt að þessu skemmtilega svæði verði haldið við. Bæði er staðsetningin afar sérstök og eins hitt að það er gaman fyrir krakka að sjá hvernig er hægt að nota efnivið á margvíslegan hátt. Hins vegar er rólóinn gerður úr timbri sem er forgengilegra en margt annað og því er viðhaldið mikið. Okkur datt helst í hug að reyna að leita eftir styrkjum hjá fyrirtækjum og í fleiri digra sjóði til nauðsynlegra endurbóta og viðhalds og finna síðan einhvern hagann einstakling til að halda svæðinu við.“
Bjössaróló heitir eftir höfundi sínum og hugsmiði, Birni Guðmundssyni, sem bjó við svæðið og byggði það upp. Til þess nýtti hann efnivið sem kannski hefði ekki komið að notum annars.
|