Hjartaheill á Vesturlandi bauð upp á ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu í Lionshúsinu í Stykkishólmi á laugardag í samstarfi við lyfjafyrirtækið Aztra Zeneca. Hjartaheill, sem er félag hjartasjúklinga á Vesturlandi, hefur boðið upp á mælingar sem þessar undanfarin ár og eru þær til skiptis á þéttbýlisstöðum á Vesturlandi. Í ár mættu alls 121 til að láta mæla sig í Stykkishólmi og eru það mun fleiri en fulltrúar Hjartaheilla áttu von á sem sýnir sjálfsagt að fólk er sífellt að verða meðvitaðra um mikilvægi góðrar heilsu. |
Lyfjafyrirtækið AztraZeneca skaffaði tæki og búnað til mælinganna og veitti þeim sem þess óskuðu ráðgjöf. Það var svo heilbrigðisstarfsfólk frá Heilsugæslustöðinni í Stykkishólmi sem sá um mælingarnar í sjálfboðavinnu ásamt fulltrúa frá lyfjafyrirtækinu. Það var fólk á öllum aldri sem lét mæla blóðfitu og blóðþrýsting að þessu sinni og ánægjulegt að unga fólkið lætur sig þessi málefni varða ekki síður en eldra fólk. Að þessu sinni voru nokkrir með það háa blóðfitu að þeim var ráðlagt að leita læknis, aðrir fengu ráðleggingar varðandi hreyfingu og bætt mataræði, en það eru þættir sem geta haft veruleg áhrif á gildi blóðfitu hjá fólki þó inn á milli séu alltaf einhverjir sem þurfa á aðstoð lyfja að halda.
|