Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 07:32 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Námskeið í sýningum kynbótahrossa

23. apríl 2008

Um síðustu helgi bauð Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við Félag hrossabænda upp á námskeið er fjallaði um sýningu á kynbótahrossum. Um 20 manns sóttu námskeiðið en þar af kom um helmingur með hross. Þátttakendur komu af svæðinu frá Snæfellsnesi að Kirkjubæjarklaustri. Leiðbeinendur voru Reynir Aðalsteinsson tamningameistari, Þorvaldur Kristjánsson kynbótadómari og Daníel Jónsson tamninga- og sýningamaður. Námskeiðið var hugsað fyrir hestafólk sem ætlar sér að sýna hross í kynbótadómi og vill auka skilning sinn á því hvernig best er að standa að sýningum á kynbótahrossum og hvaða atriði það eru sem verið er að að meta í byggingu og hæfileikum.

 

Í upphafi voru hrossin skoðuð með það í huga að finna hvar mætti gera betur og þannig greina hvernig megi bæta undirbúning og þjálfun hestsins og vinnu knapans. Farið var í grunnatriði eins og að allar ábendingar knapa séu réttar og virkar, að hesturinn sé jafn og samspora, að hann sé í jafnvægi andlega og líkamlega og að sátt sé um taumsamband. Hinar ýmsu hlýðniæfingar sem ætlað er að mýkja og styrkja hestinn voru teknar fyrir og það skoðað hvernig þær eru nýttar til þess að móta hinn heilsteypta sýningarhest. Einnig var farið yfir sýninguna sjálfa; annars vegar uppstillingu á hrossum í byggingardómi og hvaða atriði verið er að meta í byggingu hrossa og hins vegar sýningu á hæfileikum og þeim atriðum sem verið er að meta þar. Afrekssýningarmaðurinn Daníel Jónsson sýndi með hvaða hætti best er að stilla hrossum með ólíka byggingu upp þannig að vel færi og tók hrossin til kostanna hvert og eitt miðað við hæfileika þeirra.

 

Á myndinni er María Þórarinsdóttir að sýna gæðing sinn fyrir hæfileikadóm.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 07:20  A 9  4°C
Akrafjall 07:20  ANA 3  6°C
Hafnarfjall 07:20  N 1  4°C
Vatnaleið 07:20  SSA 7  2°C
Hraunsmúli 07:20  A 4  4°C
Fróðárheiði 07:20  ASA 11  -0°C
Brattabr. 07:20  SSV 4  1°C
Holtav.h. 07:20  S 1  1°C
Laxárdalsh. 07:20  ASA 4  2°C
Svínad. 07:20  SV 3  2°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent