Hér á vef Skessuhorns er nú að finna grein eftir Sturlu Böðvarsson, forseta Alþingis, um þær umræður sem komnar eru á kreik um aðild Íslendinga að Evrópusambandinu. Þar segir meðal annars: “Búseta á Íslandi mótast auðvitað af legu landsins og verður alltaf ósambærileg við það að búa í hinni þéttbýlu, iðnvæddu og frjósömu Mið-Evrópu og Skandinavíu. Afstaða okkar og kjör hljóta að mótast af hinum sérstöku aðstæðum sem eru á Íslandi. Það er því er ekki óeðlilegt að við teljum vandkvæðum bundið að innleiða allar reglur viðskipta sem gilda í Evrópu, svo sem reglur um auðlindanýtingu og hlutverk landbúnaðar í því að byggja upp fæðuöryggi þjóðarinnar.”
Sjá grein Sturlu hér að neðan á síðunni undir “aðsendar greinar”.
|