Í Brekkukoti í Reykholtsdal býr Þorvaldur Jónsson bóndi og lífskúnstner sem hefur leik- og sönglist í blóðinu. Ásamt því að leika og koma víða við í söng, yrkir hann jörðina og tekur mikinn þátt í félagsstarfi. Þorvaldur hefur háð hatramma glímu við Bakkus konung, haft betur og lagt mörgum lið í baráttunni við þann leiða kóng.
Í Skessuhorni sem kom út í dag er ítarlegt viðtal við Þorvald Jónsson um ævi hans og störf, leik og liðnar stundir. Strákurinn sem ólst upp í Reykholti, lærði smíðar, spilar á hljóðfæri, syngur og yrkir og tekur virkan þátt í félagsstarfi sinnar sveitar. Það er Valdi.
|