Leik FH og ÍA lauk rétt í þessu og endaði með því að Hafnfirðingarnir sigruðu með tveimur mörkum gegn engu. Leikurinn fór fjörlega af stað en fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 75. mínútu, rétt eftir að Skagamaðurinn Andri Júlíusson hafði fengið dauðafæri hjá FH-ingum en skaut í stöngina. Hafnfirðingar innsigluðu svo sigur sinn með því að skora annað mark á 90. mínútu.
Guðjón Þórðarson þjálfari Skagamanna sagði í viðtali við Stöð 2 Sport eftir leikinn að fyrirfram hefði verið ljóst að þessi leikur yrði erfiður. Hann sagði það kaldhæðni örlaganna að Hafnfirðingar hefðu skorað sitt fyrsta mark örfáum andartökum eftir að Skagamenn fengu tækifæri til þess að komast yfir. Spilamennska liðsins hafði þó batnað frá því í fyrsta leiknum að mati þjálfarans og hann lét þess getið að ÍA hefði þó fengið einu stigi meira í fyrstu tveimur leikjum þessa tímabils en í fyrra.
|