Prentað þriðjudaginn 18. júní kl. 21:32 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Engir fordómar í garð Granda

17. maí 2008

,,Hæsti byggingadómur í heimi leit dagsins ljós í dag þegar Logi Laxdal mætti með þriggja vetra glæsifolann Granda frá Akranesi sem fékk hvorki meira né minna en 8,57 fyrir byggingu.” Þannig segir frá árangri þriggja vetra stóðhestsins Granda frá Akranesi í frétt Hestafrétta í fyrradag. Grandi er í eigu Jóns Árnasonar, verkstjóra hjá Skaganum á Akranesi. Svo skemmtilega vill til að hesturinn er nefndur eftir HB Granda og í fréttinni er verið að lýsa svokölluðum for-dómum á hrossum sem fram fóru á svæði Fáks í Víðidal fyrr í vikunni. Ljóst er af einkunnagjöfinni að litlir sem engir fordómar hafa ríkt í garð Granda. Jón Árnason er að vonum skýjum ofar af gleði yfir árangri hestsins.  ,,Það er reyndar ekki rétt að þetta sé hæsti byggingardómur í heimi en þetta er líklega hæsta einkunn sem svo ungur hestur hefur fengið,” segir Jón í viðtali við vef HB Granda, en Grandi er úr ræktun Jóns.

 

Hann segist hafa nefnt tvo hesta eftir fyrirtækjum á Akranesi, umræddan Granda og svo annan sem fékk nafnið Skaginn. ,,Grandi hefur staðið sig frábærlega vel en Skaginn hefur ekki alveg staðið undir væntingum,” segir Jón en þess má geta að Ingólfur bróðir hans er forstjóri Skagans hf. og Jón er þar verkstjóri í framleiðsludeild fyrirtækisins.

“Grandi er ákaflega vel ættaður hestur, undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Kviku frá Akranesi, en þess má geta að faðir Gára er hinn þekkti stóðhestur Orri frá Þúfu. Að sögn Jóns verður Grandi áfram hafður graður og stefnt er að því að byrja að temja hann næsta vetur. Loks má geta þess að Skaginn heldur enn “kúlunum” en óvíst hversu lengi.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 21:20  A 5  8°C
Akrafjall 21:20  A 5  9°C
Hafnarfjall 21:20  A 6  9°C
Vatnaleið 21:20  SA 5  8°C
Hraunsmúli 21:20  A 3  9°C
Fróðárheiði 21:20  ASA 9  5°C
Brattabr. 21:20  S 8  6°C
Holtav.h. 21:20  S 7  7°C
Laxárdalsh. 21:20  S 4  10°C
Svínad. 21:20  S 5  9°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent