Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur og prófessor við Háskólann á Rhode Island í Bandaríkjunum ólst upp í hringiðu gamla Stykkishólms. Hann er fæddur í Norska húsinu en hefur heimsótt Ísland flest þau ár sem hann hefur búið erlendis. Nú er Haraldur hinsvegar kominn aftur á æskuslóðirnar og hyggst eyða þar ævikvöldinu. Hann keypti fyrir nokkrum árum hús í gamla miðbænum og hefur látið gera það upp í sem næst upprunalegri mynd. Þetta er húsið Berg sem stendur við Bókhlöðustíg númer 10, skammt frá Norska húsinu. Haraldur er í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Skessuhorns þar sem hann segir frá spennandi uppvaxtarárum í Hólminum, jarðfræðiáhuganum og því hversu sterkar taugar hann hefur alltaf borið til heimahaganna.
|