Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 18:15 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Votlendissetur stofnað á Hvanneyri

2. júní 2008

Hvanneyringar og gestir þeirra fjölmenntu til hátíðarstundar við Hvanneyrarkirkju um hádegisbil á föstudag. Þá var gengið formlega frá stofnun Votlendisseturs Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Eftir að Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskólans hafði kynnt verkefnið, flutti forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson ávarp og afhjúpaði myndskilti um votlendissetrið í félagsskap yngstu íbúanna á staðnum. Við það tækifæri gat Ólafur Ragnar þess að það væri einmitt velviðeigandi að börnin fengju að taka virkan þátt í þessari athöfn, þar sem allar umbætur eins og verndun votlendis beindist að, væru einmitt gerðar í þágu framtíðarinnar, þeirra sem landið erfa.

 

 

Ágúst Sigurðsson rektor rakti forsögu þess að ákveðið var að ráðast í stofnun votlendisseturs á Hvanneyri. Ágúst sagði að landbúnaðarháskólinn hefði tekið við því kefli frá íslensku votlendisnefndinni fyrir tveimur árum, að annast kennslu í votlendisfræðum og sinna alþjóðlegum rannsóknum og samvinnu á þeim vettvangi. Um það leyti sagðist Ágúst einmitt hafa verið staddur í Ohio í Bandaríkjunum ásamt Ólafi Ragnari og fleirum, í heimsókn hjá einum aðalsamstarfsaðila landbúnaðarháskólans, Háskólanum í Ohio. Þar starfar hinn heimsfrægi votlendisfræðingur Bill Mitch. Þaðan hafi komið sterk hvatning um stofnun votlendissetursins á Hvanneyri. Ágúst sagði að votlendið væri lungu jarðarinnar og mjög mikilvægur þáttur í íslenskri náttúru. Hvanneyri væri vel í sveit sett að sinna þessum rannsóknum, áhugavert votlendi væri í nágrenni skólans og í Borgarfirði. Þar væru Hvanneyrarmýrarnar sem um aldir höfðu verið af mörgum taldar matarbúr Borgarfjarðar, þar hefðu margir héraðsbúar bjargað sér með heyskap þegar hart var í ári og þrengdi að.

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 18:00  NV 3  7°C
Akrafjall 18:00  A 6  7°C
Hafnarfjall 18:00  NNA 4  7°C
Vatnaleið 18:00  VNV 3  5°C
Hraunsmúli 18:00  VSV 4  5°C
Fróðárheiði 18:00  SSV 2  2°C
Brattabr. 18:00  NNV 2  3°C
Holtav.h. 18:00  N 3  2°C
Laxárdalsh. 18:00  A 3  3°C
Svínad. 18:00  NNV 2  4°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent