Í sumar verður heldur ekki framleitt lambakjöt undir merkjum Borgarness kjötvara, en sú framleiðsla var stór þáttur í starfsemi BK á sinni tíð. Þess í stað hefur nú verið ákveðið að auka við úrbeiningu stórgripa og þá einkum svína í Borgarnesi. Hluti starfsmanna sem áður vann hjá Borgarnes kjötvörum er nú hjá Síld og fiski, en aðrir hjá Stjörnusalati.
“Nú eru 22 starfsmenn sem vinna við framleiðslustörf í húsnæði okkar í Borgarnesi og er ríflega helmingur þeirra við úrbeiningu og í skyldum störfum en tæplega helmingur við salatgerðina. Við höfum nú tekið í notkun þessa flæðilínu í Borgarnesi en hún var áður í Hafnarfirði. Flytjast nokkrir starfsmenn af þeim sökum í Borgarnes en fyrir voru margir sem hafa góða þekkingu í þessari vinnslu. Þetta er sérhönnuð flæðilína fyrir svínakjöt, smíðuð hjá Marel,” sagði Sveinn í samtali við Skessuhorn. Hann segir svínakjötið koma úr eigin ræktun fyrirtækisins á Kjalarnesi, en auk þess kaupir Síld og fiskur svín frá Stjörnugrís í Melasveit og frá Hýrumel í Borgarfirði. |