 |
Logaland. Nýbyggingin er efri hæðin til vinstri á myndinni. | Fjölmenni var statt í Logalandi í Reykholtsdal í gær þegar aldarafmælis Ungmennafélags Reykdæla var minnst. Við það tækifæri var viðbygging við Logaland formlega tekin í notkun og Sr Geir Waage sóknarprestur blessaði hana. Þetta mun vera í fimmta skipti sem húsið er stækkað en bygging þess hófst fyrir tæplega 100 árum síðan. Logaland er elsta félagsheimili í eigu ungmennafélags hér á landi en nýbyggingin jafnframt yngsta byggingin. Við þetta tækifæri færði Halldóra Þorvaldsdóttir í Reykholti, börn hennar og fjölskyldur þeirra ungmennafélaginu að gjöf nýtt píanó til notkunar á efri hæð hússins. Gjöfin er í minningu um Jón Þórisson í Reykholti en hann var alla tíð mjög virkur félagi í UMFR. Hátíðarræðu dagsins flutti Vigfús Pétursson í Hægindi. Þétt hátíðardagskrá var frá morgni og fram á kvöld, en hún hófst með því að sveitungar riðu til messu í Reykholti og lauk undir kvöld í Logalandi.
Nánar verður greint frá afmæli þessa elsta starfandi ungmennafélags á Vesturlandi í Skessuhorni í næstu viku.
|