Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 04:18 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Fornar gáttir – sýning um minjarannsóknir í Reykholti

27. júní 2008

Sett hefur verið upp í Snorrastofu í Reykholti sýning um fornleifarannsóknir undanfarinna ára á staðnum. Sýningin er hönnuð af Sigríði Kristinsdóttur, grafískum hönnuði, en texta vann Guðrún Sveinbjarnardóttir, fornleifafræðingur og verkefnisstjóri fornleifarannsókna í Reykholti. Sýningin, sem staðsett er í Finnsstofu inn af Safnaðarsal Reykholtskirkju, verður opnuð formlega í dag, laugardag kl. 18:00. Fornleifa í Reykholti er getið snemma á 19. öld, þegar skoski ferðalangurinn Ebenzer Henderson lýsir í ferðabók sinni því sem hann telur vera leifar af virki á staðnum. Túlkun hans á án efa rætur í frásögn Sturlungasögu frá 13. öld. Í kirkjugarðinum fannst steinkista, með leifum af rauðu efni, þegar gröf var tekin þar, einnig hefur fundist legsteinn með rúnaletri.

 

 

Byggingarframkvæmdum í tengslum við nýja skólahúsið, sem reist var á árunum 1929-31, fylgdi síðan hrina af fornleifafundum, sem einungis að hluta til voru rannsakaðar. Markvissar rannsóknir hófust fyrst árið 1987 með könnunarskurðum og fornleifauppgreftri á hluta af bæjarhólnum, næstu tvö sumrin. Rannsóknir hófust svo aftur 1998 og stóðu yfir til ársins 2007 í 1-2 mánuði hvert sumar. Fyrri hluta þessa tímabils var hluti af gamla bæjarstæðinu rannsakaður, og einnig fannst smiðja undir gömlu timburkirkjunni. Á seinni hluta uppgraftartímabilsins fóru fram rannsóknir á kirkjustæði því sem kirkjur stóðu á í Reykholti fram til 1886, þegar timburkirkja var byggð á nýjum stað.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 04:10  ASA 1  7°C
Akrafjall 04:10  ANA 5  8°C
Hafnarfjall 04:10  VNV 2  8°C
Vatnaleið 04:10  NNV 3  6°C
Hraunsmúli 04:10  VNV 5  10°C
Fróðárheiði 04:00  VNV 3  5°C
Brattabr. 04:00  NNA 3  4°C
Holtav.h. 04:10  N 4  4°C
Laxárdalsh. 04:10  NA 6  5°C
Svínad. 04:10  A 1  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent