Prentað föstudaginn 24. maí kl. 08:51 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Metfjöldi fugla meðal annars vegna síldarinnar

12. janúar 2009

Met var sett í fjölda fugla og tegunda í nýlokinni talningu Náttúrustofu Vesturlands á vetrarfuglum. Slík talning er gerð á hverju ári.  Á vef Náttúrustofu Vesturlands segir að fuglalíf sé líflegt við Breiðafjörð í vetur eins og síðasta vetur, líklega ekki síst vegna mikillar síldargöngu undanfarna mánuði. “Nýlokið er árlegri talningu fugla sem hafa vetursetu hér á landi. Náttúrufræðistofnun Íslands stendur fyrir talningunni sem framkvæmd er árlega á um 150 svæðum víða um land. Starfsmaður NSV hefur talið svæði við Kolgrafafjörð og Hraunsfjörð á norðanverðu Snæfellsnesi í janúarbyrjun frá árinu 2001 og var þetta ár engin undantekning. Að þessu sinni var talningin framkvæmd af þeim Róbert A. Stefánssyni, starfsmanni NSV og Daníel Bergmann, náttúruljósmyndara.” 

 

 

Mikið mávager

Í niðurstöðum talningar þeirra félaga fyrr í þessum mánuði kemur m.a. fram að heildarfjöldi fugla hafi aldrei talist eins mikill. Nú töldu þeir 5.714 fugla samanborið við 3.554 fugla á síðasta ári þegar um metár var að ræða. Meðalfjöldi áranna 2001-2008 var hinsvegar 1.953 fuglar. “Auk þess var fyrra met um fjölda tegunda (21) slegið þar sem nú sáust fuglar af 25 tegundum. Mikil fjölgun kom fram hjá allnokkrum tegundum (allir máfar, fýll, dílaskarfur, toppönd og teista). Máfar voru mun fjölliðaðri en nokkru sinni síðan talningar hófust, þar með talið mun fleiri en metárið 2008. Hvítmáfar voru nú 10 sinnum fleiri en í janúar 2008, bjartmáfar ríflega 6 sinnum fleiri og svartbakar tvöfalt fleiri. Þá voru toppendur, dílaskarfar og teistur mun fleiri nú en áður. Æðarfuglar hafa aðeins einu sinni áður verið fleiri (jan 2008). Tegundir sem nú sáust í fyrsta sinn voru fýll, gulönd, stormmáfur og silfurmáfur.”

 

Fjör í síldarafgöngunum

Þeir Róbert og Daníel segja líklega skýringu á þessum mikla fuglafjölda vera síldargöngur síðustu mánaða inni á Breiðafirði. “Heil eða hálfétin síld lá eins og hráviði í fjörum og jafnvel uppi í móa og á túnum og bar eins og fjöldi fugla miklu fæðuframboði glöggt vitni."

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 08:40  A 8  9°C
Akrafjall 08:40  A 4  9°C
Hafnarfjall 08:40  SA 10  10°C
Vatnaleið 08:40  ASA 7  7°C
Hraunsmúli 08:40  A 6  8°C
Fróðárheiði 08:30  A 9  5°C
Brattabr. 08:30  S 3  6°C
Holtav.h. 08:40  NNV 3  4°C
Laxárdalsh. 08:40  A 4  4°C
Svínad. 08:40  ANA 5  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent