Nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri hafa í mörg ár teiknað mynd á jólakort og selt til styrktar góðu málefni. Í ár var sami hátturinn hafður á og núna fékk ungur drengur á Hvanneyri að njóta ágóðans af sölunni. Það var hann Bjarki Fannar Hjaltason sem fæddist með hjartagalla í ágúst 2007. Þrátt fyrir ungan aldur þá er hann búin að fara út til Bostons í aðgerð og fylgst er mjög vel með honum af læknum hér heima. Nemendur skólans söfnuðu rúmlega 50.000 krónum sem runnu óskiptar til Bjarka Fannars og fjölskyldu hans.
|