Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 21:19 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Landsfundur kenndur við breytingar hjá Framsóknarflokknum

16. janúar 2009

Hluti frambjóðenda til forystu flokksins.
Talið er að fjölmennasta flokksþing í sögu Framsóknarflokksins sé nú hafið í Reykjavík. Þar mun verða kosið um helstu stefnumál flokksins og þinghaldinu lokið með kosningu nýrrar forystu. Fyrir liggur að borin verður upp tillaga þess efnis að nýr formaður þurfi meirihluta atkvæða þingfulltrúa. Almennt gera framsóknarmenn ráð fyrir að enginn þeirra fimm aðila sem gefið hafa kost á sér til formanns hljóti í fyrstu umferð meirihluta atkvæða og því þurfi tvöfalda kosningu, þ.e. að í síðari umferð verði kosið um þá tvo sem flest atkvæði hljóta í fyrri umferð. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er talið líklegt að sú kosning verði milli þeirra Höskuldar Þórhallssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Sömu heimildir herma að Páll Magnússon sé af flestum talinn of bendlaður við fyrrum forystumenn flokksins til að hann verði valinn. Evrópusambandssinnar innan flokksins munu þó margir velja á Pál. Þingið var sett núna klukkan 10 en Valgerður Sverrisdóttir formaður Framsóknarflokksins flytur yfirlitsræðu fráfarandi formanns klukkan 13:15 í dag.

 

 

Í dag verða greidd atkvæði um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi. Tekið er fram að tryggja þurfi sérstaklega hagsmuni sjávarútvegs og landbúnaðar.

 

Þetta er þrítugasta flokksþing Framsóknar og ljóst að þetta verður þing breytinga. Afdrifaríkar ályktanir liggja fyrir fundinum. Stærstu ályktanirnar eru um Evrópumál og tillaga um stjórnlagaþing. Á átakafundi í nóvember var ákveðið að flýta flokksþingi og um leið var umræðu um Evrópumálin frestað. Þingfulltrúar munu í dag greiða atkvæði um ályktun um aðildarviðræður við Evrópusambandið og er búist við heitum umræðum um málið.

 

Á morgun verður svo rædd ályktun um stjórnlagaþing en samkvæmt henni er lagt til að stjórnskipun Íslands verði endurskoðuð á sérstöku stjórnlagaþingi. Stjórnarskráin verði þar endurskoðuð í samræmi við hugmyndir um stjórnskipan landsins.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 21:10  VNV 3  11°C
Akrafjall 21:10  ANA 4  12°C
Hafnarfjall 21:10  NNA 3  12°C
Vatnaleið 21:10  NV 4  10°C
Hraunsmúli 21:10  NNA 8  13°C
Fróðárheiði 21:10  NV 5  10°C
Brattabr. 21:10  NNA 3  7°C
Holtav.h. 21:10  N 6  4°C
Laxárdalsh. 21:10  NNA 9  6°C
Svínad. 21:10  NNV 5  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent