Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 02:17 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Mótmæla harðlega breytingum í heilbrigðisþjónustunni

19. janúar 2009

“Þingflokkur Vinstri grænna mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðisþjónustunni. Það er mat þingflokksins að breytingarnar séu hvorki til þess fallnar að styrkja þjónustuna né auka öryggi hennar og að þær stefni í voða nærþjónustu í heimabyggð. Engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna að til lengri tíma litið leiði breytingarnar til þjóðhagslegs sparnaðar. Með breytingunum eru sveitarfélögin þvinguð til að taka yfir nærþjónustuna ellegar verði úr henni dregið. Skipulagsbreytingarnar virðast hafa verið undirbúnar löngu áður en yfirstandandi efnahagskreppa skall á þótt þær séu nú kynntar undir því yfirskini að þær séu óhjákvæmilegar,” segir í tilkynningu frá VG.

 

 

Þá segir einnig að þingflokkurinn mótmæli gerræðislegum vinnubrögðum heilbrigðisráðherra í málinu þar sem ekkert samráð var haft við viðkomandi starfsmenn, stofnanir og sveitarfélög. “Þá lýsir þingflokkurinn furðu á því að ekki skuli unnið samkvæmt nýútkomnum leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins um sameiningu ríkisstofnana og víðtækt samráð haft við alla aðila áður en farið er í svo umfangsmiklar breytingar. Nefna má sérstaklega vanhugsaðar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala, lokun skurðstofu og sérfræðiþjónustu. Ljóst er að þessi aðgerð er undanfari frekari einkavæðingar í heilbrigðisþjónustunni, sem gengur í berhögg við þarfir og hagsmuni samfélagsins. Þá er með eindæmum hvernig komið er fram við íbúa landsbyggðarinnar þar sem grunnheilbrigðisþjónustu í stórum landshlutum er einhliða sundrað og grafið undan nærþjónustu og sjálfstæði heilbrigðisstofnana í héraði.

Þingflokkur VG mótmælir einnig hækkun sjúklingaskatta, þ.m.t. nýju innlagnargjaldi á sjúkrahús. Óviðunandi er að ósanngjarnar byrðar, sem þjóðin neyðist nú til að axla vegna mistaka ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, skuli vera lagðar á sjúklinga og aðra notendur heilbrigðisþjónustunnar.”

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 02:00  A 14  7°C
Akrafjall 02:00  ASA 10  7°C
Hafnarfjall 02:00  ASA 17  8°C
Vatnaleið 02:00  SA 11  5°C
Hraunsmúli 02:00  ASA 9  7°C
Fróðárheiði 02:00  ASA 17  4°C
Brattabr. 02:00  SSA 11  4°C
Holtav.h. 02:10  SSV 17  4°C
Laxárdalsh. 02:00  SA 6  6°C
Svínad. 02:00  S 8  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Grundarfjarðarbær: Vinnuskóli sumarið 2013
Grundarfjarðarbær: Vorskóli
Stykkishólmsbær: Heilsuvika 2013
Hvalfjarðarsveit: Sundleikfimi
Stykkishólmsbær: Vorskólinn 2013
Stykkishólmsbær: Sýningin í Norska húsinu
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent