Ungu stelpurnar í Skallagrími, sem eru komnar í fjögurra liða úrslit í Subwaybikarnum, eru líklega sáttar með dráttinn í undanúrslitum sem fram fór fyrir skömmu. Þær fá KR-inga í heimsókn og fara undanúrslitin fram 24.-25. janúar. Það verða því Keflavík og Valur sem mætast í hinum leiknum, en þau lið eru meðal þeirra efstu í Icelandic Expressdeildinni. KR-ingar eru hinsvegar fyrir neðan miðju, en hins ber að geta að Vesturbæingarnir eru alltaf mikið bikarlið og hafa ósjaldan hampað bikarnum.
Leikur KR og Skallagríms verður í Borgarnesi sunnudaginn 25. janúar og hefst klukkan 16:00. Allir á völlinn!
|