Prentað laugardaginn 25. maí kl. 08:32 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Aldrei orðið vitni að öðrum eins akstursmáta

30. janúar 2009

Snjóruðningur við aðstæður líkt og voru í gær. Myndin tengist ekki að öðru leyti umræddu atviki.
Akstursaðstæður eru mjög varasamar þessa dagana, þegar víða er snjóþekja og hálka á vegum. Því er brýnt að ökumenn hafi varann á og hagi akstri sínum miðað við aðstæður og umfram allt virði merkingar við og á vegum. Atvinnubílstjórnar ættu til dæmis að vera búnir að stimpla inn í hugann hvar framúrakstur er bannaður, þó þær línur séu sums staðar nú undir snjó og klaka. Blaðamaður Skessuhorns varð í gær vitni að vítaverðu aksturslagi atvinnubílstjóra og kýs að deila reynslu sinni.

“Ég var á ferðinni um þjóðveginn í Melasveit um hálfsjöleytið í gærkveldi. Þá varð ég vitni að ótrúlegum akstursmáta á flutningabílstjóra á norðurleið. Þegar ég var kominn upp á hæðina við Fiskilæk og alveg að fara að mæta nokkrum bílum, áreiðanlega einum fimm talsins, kemur allt í einu sterkt ljós á móti mér frá háum ljósgeisla bifreiðar. Ég áttaði mig fljótt á að þetta var vöruflutningabifreið, sem betur fer ekki með tengivagni, sem kom á móti mér og var að fara fram úr þessum bílum.

 

 

Sem betur fer var ég á hægri ferð og gat haldið bílnum inni á veginum, en þessi bílstjóri rak mig gjörsamlega út á blábrún vegarins og náði að smeygja sér á milli mín og fremsta bílsins án þess að til árekstrar kæmi. Þetta gerðist í fljúgandi hálku á hæðinni á stað þar sem alls ekki má taka fram úr öðrum bíl, en bílstjórinn á þessum stóra og langa bíl lét sig ekki muna um að fara fram úr fimm. Mér varð svo mikið um þetta að ég hálf lamaðist og var svolítinn tíma að jafna mig á eftir. Það var bara slembilukka að þarna skyldi ekki koma til árekstrar fjölda bíla með tilheyrandi afleiðingum, þó ég búist við að engir bílanna hafi verið á mjög mikilli ferð,“ segir Þórhallur Ásmundsson blaðamaður Skessuhorns.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 08:20  SSV 3  5°C
Akrafjall 08:20  SV 4  6°C
Hafnarfjall 08:20  SSV 7  5°C
Vatnaleið 08:20  SSA 7  4°C
Hraunsmúli 08:20  SV 2  6°C
Fróðárheiði 08:20  SA 4  3°C
Brattabr. 08:20  SSV 11  3°C
Holtav.h. 08:20  SSV 15  3°C
Laxárdalsh. 08:20  SV 11  5°C
Svínad. 08:20  S 6  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent