"Frístundaveiði er dæmi um hvernig þekking úr sjávarútvegi nýtist inn í ferðaþjónustu. Frumkvæði og forysta vestfirskra frumkvöðla hafa lyft grettistaki í jákvæðri ímynd á frístundaveiði á Íslandi. Þar skiptir öllu að leikreglur séu hafðar þannig að jafnræðis sé gætt bæði gagnvart ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Það gengur ekki árið 2009 að ein atvinnugrein leggist gegn annari atvinnugrein, mikilvægt er að finna leiðir til að sátt geti orðið og báðar atvinnugreinarnar haft góð rekstarskilyrði í sátt og samlyndi. Engu að síður þarf að passa upp á hagsmuni beggja þessara atvinnugreina," segir Herdís Þórðardóttir alþingismaður m.a. í grein sem hún ritar hér á vefinn í dag. Þar fagnar Herdís ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að heimila hvalveiðar.
Sjá grein Herdísar hér á vefnum.
|