Í nótt var talsvert tjón unnið í skemmdarverkum í og við Gámu sorphirðingarstöðina á Akranesi. Að sögn Torfa Einarssonar verkstjóra hjá Gámaþjónustu Vesturlands sem rekur Gámu, hefur húsið verið grýtt, í því brotnar allar rúður, sem og í einum gámabíl sem stóð fyrir utan húsið. Torfi sagði að málið væri í rannsókn hjá lögreglu og nú væri verið að fara yfir hvað hugsanlega mætti sjá í eftirlitsmyndavélum sem staðsettar eru í nágrenni Gámu. Annars væru engin ummerki að sjá að öðru leyti og engar vísbendingar um hverjir hafi verið á ferð, „enda eigum við ekkert nema vini,“ segir Torfi. Ekki er að sjá að farið hafi verið inn í húsið og hlutir fjarlægðir. „Það er að sjá að þetta hafi verið leikaraskapur,“ sagði Torfi.
|