Tveir ungir menn gista nú fangageymslur á Akranesi eftir að hafa gegnið berserksgang á iðnaðarsvæðinu við Ægisbraut í nótt. Þeir mölvuðu rúður í bílum, vinnuvélum og atvinnuhúsum og brutust svo inn í vinnuskúr. Mennirnir sem voru undir áhrifum fíkniefna tóku þar með sér ýmislegt og voru með það í stórum ruslapokum þegar lögregla handsamaði þá. Mikill fyrirgangur var í mönnunum meðan á þessu stóð og áræddu ekki vitni sem gerðu lögreglunni viðvart að aðhafast neitt. Báðir hafa mennirnir áður gerst brotlegir við lög, en þeirra bíður í dag yfirheyrsla hjá lögreglu.
|