Tindastólsmenn byrjuðu með látum í leiknum og voru með frumkvæðið í leiknum lengst af. Skallagrímsmenn voru þó aldrei langt undan og aðeins munaði tveim stigum á liðunum í hálfleik. Þegar skammt var til leiksloka var Tindastóll með ágæta stöðu 73:79 og ekkert sem benti til annars en gestirnir myndu landa sigrinum. Skallagrímsmenn voru ekki búnir að gefast upp, skoruðu átta stig í röð og voru sterkari á lokakaflanum.
Sveinn Davíðsson átti sinn besta leik fyrir Skallagrím í vetur og var stigahæstur með 26 stig. Landon Quick gerði 19 sem og Igor Beljanski og Sigurður Þórarinsson sem er gríðarlegt efni hjá Skallagrími. Þá skoraði Þráinn Ásbjörnsson 2 stig. Í liði Tindastóls voru stigahæstir frændurnir Friðrik Hreinsson með 20 stig og Svavar Birgisson með 19. Það munaði mestu fyrir Tindastól að fyrrum Skallagrímsmaðurinn Darrel Flake komst aldrei í takt við leikinn og skoraði einungis átta stig.
|