„Ég legg áherslu á fjölbreytni í atvinnulífi á landsbyggðinni og umhverfismál og mun beita mér af afli gegn hugmyndum um olíuhreinsistöð og aðra mengandi stóriðju. Ég vil að kvótakerfið verði endurskoðað og að kerfi sem byggir upp samfélagið á landsbyggðinni komi í stað fyrir núverandi kerfi sem er bæði ósjálfbært og hefur sogið kraftinn úr landsbyggðinni mörg undanfarin ár. Tími þess er liðinn.
Ég legg áherslu á þau miklu gæði og hlunnindi sem eru fólgin í lífinu á landsbyggðinni. Ég mun áfram beita mér fyrir aukinni fjárfestingu í grunnþjónustu á landsbyggðinni og eflingu félagsþjónustu og landbúnaðar. Það var ekki landsbyggðin sem efndi til ofþenslunnar og það þarf að standa vörð um að landsbyggðin verði ekki látin bera of þungar byrðar á þeim samdráttartímum sem framundan eru,“ segir Grímur.
Grímur Atlason var á árum áður virkur í starfi VG í Reykjavík og skipaði 4. sætið á lista flokksins í Reykjavík norður við alþingiskosningarnar 2003.
Þá hefur hann getið sér gott orð sem tónlistarmaður og bassaleikari og er nú um helgina í Bolungarvík að hljóðrita nýja plötu með félögum sínum í hljómsveitinni Ekki þjóðin.
|