Stjörnumenn byrjuðu síðan seinni hálfleikinn af krafti og ekki var langt liðið þegar munurinn var orðinn tíu stig, 60:50. Snæfellsliðið virtist ekki hafa karakter að þessu sinni til að snúa leiknum, áfram var það þannig að flæðið vantaði í sóknarleikinn og boltinn var að glatast þannig að þau voru nokkur skyndiupphlaupin sem heimamenn í Garðabæ fengu. Í stað þess að munurinn minnkaði jókst hann jafnt og þétt til leiksloka og niðurstaðan varð glæsilegur sigur Stjörnumanna 99:79.
Í Snæfellsliðinu sýndi í raun enginn sitt rétta andlit, þá helst Jón Ólafur Jónsson, sem barðist vel og var stigahæstur með 18 stig. Hlynur Bæringsson kom næstur með 17, Lucius Wagner 16, Magni Hafsteinsson 10 og Slobodan Subasic 8. Sigurður Þorvaldsson náði sér engan veginn á strik í leiknum, skoraði aðeins tvö stig. Hann var aftur á móti atkvæðamestur Snæfellinga með 23 stig og Luioce Wagner gerði 16 í leiknum á laugardaginn þegar Snæfell vann 93:81.
Justin Shouse, sem lék með Snæfelli áður en er nú í Stjörnunni, hefur verið sínum fyrrum liðsfélögum sérlega erfiður í þessum tveimur leikjum. Hann gerði 22 í fyrri leiknum og síðan 28 stig á mánudagskvöldið og var stigahæstur í sínu liði.
|