 |
Nemendurnir taka við verðlaunum sínum. | Stuttmyndakeppni starfsbrauta í framhaldsskólum landsins var haldin í Flensborgarskóla í Hafnarfirði fyrr í vikunni. Sex kvikmyndir, úr jafnmörgum skólum, voru sýndar. Framlag nemenda á starfsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands var valin besta myndin af dómnefnd keppninnar. Starfsbrautin kom frá þessari keppni með tvo verðlaunabikara. Annar er til eignar en hinn er farandbikar. Á myndinni sjást nemendur starfsbrautarinnar fagna sigri. Umsjón með vinnu við gerð kvikmyndarinnar höfðu Edda Einarsdóttir kennari og Eygló Ólafsdóttir stuðningsfulltrúi.
Heimild: www.fva.is Ljósm. Freyr Karlsson.
|