Gistinætur á hótelum landsins í febrúar síðastliðnum voru 72.900 á landinu öllu en voru 77.600 í sama mánuði árið 2008. Það er fækkun um 6% milli ára. Gistinóttum fækkaði á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi en fjölgaði í öðrum landshlutum. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um rúm 10% miðað við febrúar 2008, voru nú 5.800 en voru 5.200 í sama mánuði í fyrra. Fækkun gistinátta í heild á landinu í febrúar má aðallega rekja til Íslendinga en gistinóttum þeirra fækkaði um 17% á meðan gistinóttum útlendinga fækkaði um rúmt prósent miðað við febrúar 2008.
|