Prentað föstudaginn 24. maí kl. 01:03 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Opinn fundur um stjórnmál á Akranesi í dag

19. apríl 2009

Í dag klukkan 15:00 hefst opinn fundur með fulltrúum allra stjórnmálaflokka í Bíóhöllinni á Akranesi. Fundurinn er boðaður af forystu Verkalýðsfélags Akraness. "Þetta eru einar mikilvægustu alþingiskosningar sem haldnar hafa verið hér síðustu áratugi. Vel á fimmta þúsund kjósendur í Norðvesturkjördæmi eru búsettir á Akranesi, eða sem nemur 21% allra kjósenda kjördæmisins og því er mikilvægt að þeir sem gefa kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir okkur kjósendur kynni stefnumál sín,” segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. “Ég boða til fundarins á þeirri forsendu hversu gríðarlega mikilvægar þessar kosningar eru fyrir heimilin og fyrirtækin í þessu landi. Verkalýðsfélag Akraness vill fá skýr svör frá frambjóðendum flokkanna um hver úrræði þeirra séu fyrir fólkið og fyrirtækin í þessu landi en um þessar mundir blæðir íslenskum heimilum illilega vegna þess efnahagshruns sem hefur orðið í kjölfar bankahrunsins," segir Vilhjálmur.

 

 

 

Fundurinn er fyrirhugaður með þeim hætti að einn frambjóðandi frá hverjum flokki fyrir sig mun sitja í pallborði og gefst frambjóðendum kostur á framsögu og í kjölfarið munu verða leyfðar fyrirspurnir úr sal. Einnig flytur Vilhjálmur stutt ávarp í upphafi fundar.

 

“Verkalýðsfélag Akraness hvetur alla til að fjölmenna á fundinn og krefja frambjóðendur um skýr svör varðandi þeirra stefnumál og hvernig þeir hyggjast leysa vanda heimilanna og fyrirtækjanna í landinu,” segir Vilhjálmur.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 00:50  A 8  8°C
Akrafjall 00:50  VNV 1  8°C
Hafnarfjall 00:50  NNA 2  7°C
Vatnaleið 00:50  ASA 2  4°C
Hraunsmúli 00:50  ASA 3  6°C
Fróðárheiði 00:50  ASA 5  3°C
Brattabr. 00:50  S 2  4°C
Holtav.h. 00:50  SSV 4  4°C
Laxárdalsh. 00:50  VNV 1  4°C
Svínad. 00:50  SSV 2  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent