Það stefnir í snarpan kosningaslag nú á síðustu dögunum fyrir kosningar. Vinstri hreyfingin grænt framboð hefur nú kært Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi til siðanefndar SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa, vegna meintra brota á siðareglum samtakanna. Vísir.is greinir frá þessu í kvöld, en Skessuhorn hefur fyrir því heimildir að vinstri grænir séu æfir yfir auglýsingunni sem birtist á baksíðu helstu héraðsfréttablaða landshlutans í síðustu viku. Í frétt Vísis í kvöld segir að samkvæmt upplýsingum frá Finni Dellsén, kosningastjóra Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, snúist málið um auglýsingu Sjálfstæðisflokksins þar sem birt var mynd af Steingrími J. Sigfússyni án hans vitneskju. Þá segir að slíkt sé bannað samkvæmt 8. grein siðareglna SÍA þar sem segir að ekki skuli sýna eða minnast á einstaklinga, hvort sem þeir starfa á eigin eða opinberu sviði, nema áður fengin heimild sé fyrir hendi.
Sjá: www.visir.is
|