Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 05:14 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Vinnuskóli Borgarbyggðar býst við tvöldun

7. maí 2009

Sigurþór Kristjánsson
“Við reiknum með að geta tekið alla krakka úr áttunda, níunda og tíunda bekk í vinnu í sumar,” segir Sigurþór Kristjánsson, verkstjóri Vinnuskóla Borgarbyggðar. Hann reiknar með að tvöfalt fleiri verði í vinnuskólanum í sumar en í fyrrasumar. “Það eru 85 krakkar í þessum árgöngum í Borgarnesi og ég býst við um 60 þeirra til vinnu og svo verða 7-10 krakkar á Hvanneyri og annað eins á Bifröst. Í fyrra vorum við með 36 krakka á fullum launum á öllu svæðinu. Það er skorið svolítið niður í starfseminni núna. Við vorum áður með allan hópinn í 8-9 vikur en nú fá áttundu bekkingar fimm vikna vinnu, níundu bekkingar vinna í sex vikur og tíundu bekkingar í sjö vikur. Þá fækkar flokksstjórum líka en við verðum núna með einn flokksstjóra í sex vikur og tvo í átta vikur,” segir Sigurþór.

 

 

 

Hann segir þó alltaf óvissu í sambandi við fjöldann þótt þetta sé það sem gert er ráð fyrir núna en umsóknarfrestur rennur út á föstudaginn. “Svo getur alltaf verið að einhverjir þessara krakka fái aðra vinnu, við verslunarstörf eða annað.”

Landbúnaðarháskóli Íslands sér um vinnuskólann á Hvanneyri en Borgarbyggð borgar laun krakkanna og hálf laun flokksstjóra. Sama fyrirkomulag er á Bifröst en þar kemur háskólinn að vinnuskólastarfinu.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 05:10  SA 2  7°C
Akrafjall 05:00  ANA 4  8°C
Hafnarfjall 05:00  NNA 1  8°C
Vatnaleið 05:00  VSV 1  6°C
Hraunsmúli 05:00  NA 2  8°C
Fróðárheiði 05:00  ANA 1  5°C
Brattabr. 05:00  NNA 2  5°C
Holtav.h. 05:10  NNV 3  5°C
Laxárdalsh. 05:00  Logn 7  77%°C
Svínad. 05:10  N 1  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent