Stjórn Hollvinasamtaka Bifrastar efnir til málþings um stöðu og framtíð Bifrastar í fundarsalnum Hriflu á Bifröst á morgun, laugardaginn 9. maí og hefst dagskráin klukkan 13:00. Meðal frummælanda á málþinginu verða dr. Jón Sigurðsson, fyrrverandi rektor Samvinnuháskólans og dr. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst. Vigdís Hauksdóttir, nýkjörinn þingmaður Framsóknarflokksins, stýrir málþinginu. Aðalfundur Hollvinasamtaka Bifrastar verður haldinn að loknu málþinginu.
Þá er rétt að geta þess að í kvöld, föstudag, mun Háskólinn á Bifröst standa fyrir dansleik þar sem hljómsveitin Nýdönsk spilar. Ballið hefst klukkan 22 en húshljómsveit mun hita upp fyrir meðlimi Nýdanskrar.
|