Lögreglan á Akranesi sinnti hefðbundnum verkefnum í síðustu viku en áhersla var lögð á umferðarmál að venju. Sérstaklega voru leituð uppi ótryggð ökutæki og þau tekin úr umferð. Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Fjögur þjófnaðarmál voru tilkynnt og þar á meðal þjófnaður úr bílum. Meðal annars var farið inn í þrjá bíla sem standa við Smiðjuvelli og úr þeim stolið til dæmis útvarpstækjum. Upplýsingar vegna þessa eru vel þegnar af lögreglu. Lögreglumenn stöðvuðu ökumann sl. laugardag sem var á leið til Akraness. Hann reyndist réttindalaus og undir áhrifum fíkniefna. Þá hafði hann 13 grömm af amfetamíni í fórum sínum.
|