Eftir að Gunnólfur hætti störfum sem sveitarstjóri starfaði hann hjá Megin ehf. við leikskólabyggingu í Búðardal en hefur verið atvinnulaus undanfarna mánuði. “Maður var ósáttur við að hafa misst meirihlutann í sveitarstjórn á sínum tíma og þar með atvinnuna, en er ánægður nú með að vera kominn aftur með vinnu. Ég fer norður á eftir og lýk við samning við sveitarfélagið og byrja strax störf.” Áður en Gunnólfur flutti í Dalina hafði hann búið í Vestmannaeyjum frá 1976 en er uppalinn á höfuðborgarsvæðinu.
Í sveitarstjórn tekur nú sæti Eyþór Gíslason, 5. maður á N lista. Hann er starfsmaður hjá Vegagerðinni og formaður hestamannafélagsins Glaðs í Dölum. Áður hafði Guðjón Torfi Sigurðsson fv. skólastjóri, sem skipaði 3. sæti á N lista, farið úr sveitarstjórn þegar hann flutti á Ísafjörð árið 2007.
|