Önnur umferð 1. deildar karla í knattspyrnu byrjar í kvöld og verða þá bæði Vesturlandsliðin í eldlínunni og leika bæði á heimavöllum. Víkingar í Ólafsvík hafa möguleika að fylgja eftir góðir byrjun þegar þeir fá Aftureldingu í Mosfellsbæ í heimsókn. Það bíður hins vegar leikmanna ÍA liðsins að sanna það fyrir sjálfum sér og stuðningsmönnum að Skagamenn séu líklegir til endurheimta sæti sitt í úrvalsdeildinni. Það er Leiknir úr Breiðholtinu sem kemur í heimsókn á Skagann í kvöld. Afturelding, andstæðingar Víkings, unnu líkt og þeir sinn fyrsta leik í deildinni, 0:1 fyrir austan gegn Fjarðarbyggð. Leiknir tapaði hins vegar fyrir Haukum í fyrstu umferðinni 0:2. Eins og Skessuhorn hefur greint frá vann Víkingur Ó nafna sína í Víkinni í Reykjavík 2:1 í fyrstu umferðinni og Skaginn tapaði 0:3 gegn Þór fyrir norðan.
|