Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 16:41 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Sagði sjálfur frá auðgunarbrotum sínum

22. maí 2009

Í nýlegum dómi Héraðsdóms Vesturlands er fyrrum gjaldkeri Íþróttabandalags Akraness dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt á árunum 2002 til 2007. Dæmd refsing fellur niður að þremur árum liðnum ef ákærði heldur almennt skilorð á þeim tíma. Umræddur maður viðurkenndi skýlauslega brot sín að hafa dregið sér á sjöundu milljón króna á þessu tímabili, látið félagið greiða eigin reikninga og skotið undan bókhaldsgögnum til að hylja afbrotaslóð sína. Alls var það í 132 skipti á umræddu tímabili sem maðurinn dró sér fé. Í niðurstöðum dómsins segir að við ákvörðun refsingar hafi þess verið gætt að brotin eru umfangsmikil. Á hinn bóginn er litið til þess að ákærði er með hreint sakavottorð. Auk þess horfir það honum til málsbóta að hann hefur greiðlega gengist við brotum sínum, en upphaf málsins má rekja til þess að ákærði sagði sjálfur til brotanna.

 

 

Þá hefur ákærði greitt að fullu og ríflega það þá fjárhæð sem hann hefur verið sakfelldur fyrir að hafa dregið sér. Ákærða var einnig gert að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, ríflega fimm hundruð þúsund krónur.

 

 

 
 
Senda á Facebook
 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 16:00  A 8  7°C
Akrafjall 15:50  ASA 4  8°C
Hafnarfjall 16:00  SA 11  9°C
Vatnaleið 16:00  SA 12  5°C
Hraunsmúli 16:00  A 7  7°C
Fróðárheiði 15:50  ANA 6  4°C
Brattabr. 15:50  S 10  3°C
Holtav.h. 16:00  SSV 13  4°C
Laxárdalsh. 15:50  SV 2  5°C
Svínad. 15:50  S 5  4°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent