Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna af lögreglunni á Akranesi í liðinni viku. Ökumaður var stöðvaður á Vesturlandsvegi við hefðbundið eftirlit. Grunur vaknaði um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og við skoðun greindist amfetamín og kannabisefni í þvagprufu. Daginn eftir var annar ökumaður stöðvaður á Vesturlandsvegi. Þar var um að ræða þekktan fíkniefnaneytanda. Við skoðun í bifreið mannsins fundust 10 grömm af amfetamíni og 10 grömm af cannabisefnum. Þá greindust þau efni í þvagprufu er maðurinn gaf vegna rannsóknar málsins. Tveir ökumenn voru kærðir vegna ölvunar við akstur og framvísaði annar þeirra skilríkum annars manns, en sá hafði áður verið sviptur ökuréttindum vegna ölvunaraksturs. Tvær líkamsárásir voru kærða og eru þau mál í rannsókn. Þá voru tvö smávægileg skemmdarverk tilkynnt lögreglu og er annað málið upplýst.
|