Handverksfólk í Stykkishólmi rekur þar Gallerí Lunda þar sem margvíslegur varningur er til sölu. Það er hópur handverksfólks sem stendur að galleríinu en auk þess er þar selt handverk frá eldri borgurum. Þar eru ýmsir nytjahlutir til sölu, skartgripir, myndir og fatnaður. Jóhanna Jónasóttir, sem var við afgreiðslu í galleríinu þegar Skessuhorn bar að garði, segir talsvert að gera. Viðskiptavinirnir séu bæði Íslendingar og útlendingar en hún segir að sér finnist þó viðskiptin heldur minni en á sama tíma í fyrra. “Ég kann vel við Lunda nafnið á galleríinu, enda fædd og uppalinn hér í eyjunum í nábýli við lundann.” Jóhanna segir fólk oft í vandræðum með að verðleggja muni sína en það sé reynt að leysa á sanngjarnan hátt. Galleríið er til húsa í Lionshúsinu í Stykkishólmi og aðeins opið yfir sumarið.
|