Þá segir að tíminn fram til loka kjörtímabils verður nýttur til eftirfarandi verkefna:
• Að endurskipuleggja rekstur sveitarfélagsins með það að markmiði að hér verði áfram hægt að veita góða þjónustu á fjárhagslega sjálfbæran hátt.
• Í fræðslumálum verði unnið að nauðsynlegri hagræðingu án þess að dregið verði úr gæðum faglegs starfs.
• Aðhald verði aukið í öllum almennum rekstri og fjárfestingum.
• Stjórnsýsla sveitarfélagsins verður aðlöguð að gjörbreyttu ytra umhverfi.
• Stofnanir sveitarfélagsins verða aðstoðaðar við að ráðast í þá hagræðingu sem möguleg er.
• Leitað verði leiða til að efla atvinnulíf og skapa ný störf í samvinnu við íbúa og aðra hagmunaaðila.
Verkaskipting flokkanna verður með eftirfarandi hætti:
Forseti sveitarstjórnar: Björn Bjarki Þorsteinsson
Formaður byggðarráðs: Sveinbjörn Eyjólfsson
Sveitarstjóri: Páll S. Brynjarsson
Formaður fræðslunefndar: D-listi
Formaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar: B-listi
Formaður skipulagsnefndar: D-listi
Formaður félagsmálanefndar: D-listi
Formaður tómstunda- og menningarnefndar: B-listi
|