„Það var samdóma niðurstaða stjórnar UMFÍ að mótið yrði í Borgarnesi meðal annars vegna þess að mótið hefur aldrei áður verið þar haldið. Ennfremur er öll aðstaða til fyrirmyndar í Borgarnesi. Okkur hlakkar mikið til að vinna með Borgnesingum að undirbúningi mótsins," sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ á vef félagsins.
Friðrik er í sjöunda himni
„Við erum afar kát með að við fáum að halda unglingalandsmótið í sumar. Við erum í raun í sjöunda himni með þessa niðurstöðu. Það er mikill áhugi á meðal heimamanna að fá mótið og nú liggur ekkert annað fyrir en að hefja undirbúninginn. Við höfum áður sótt um að halda mótið og því var mjög ánægjulegt að fá mótið núna," sagði Friðrik Aspelund formaður Ungmennasambands Borgarfjarðar eftir að niðurstaða stjórnar UMFÍ lá fyrir í dag hvar 13. Unglingalandsmót UMFÍ yrði haldið í sumar. Friðrik sagði við tíðindamann UMFÍ í dag að öll aðstaðan í Borgarnesi væri meira og minna tilbúin og það þyrfti að ráðast í litlar sem engar framkvæmdir. „Fjárútlát sveitafélagsins verða lítil,“ sagði Friðrik. ,,Okkur er ekki til setunnar boðið og nú má segja að við hefjum undirbúning fyrir mótið af fullum krafti. Það eru spennandi tímar fram undan," sagði Friðrik Aspelund.
|