 |
Veðurspá klukkan 5:00 í nótt. | Veðurstofa Íslands varar við stormi í nótt og í fyrramálið hér á vestanverðu landinu. Búast má við mjög snörpum vindhviðum (um 35 m/s) við Faxaflóa og Breiðafjörð í nótt, en síðan færist lægðin norðurum og í kringum hádegið á morgun verður hvassast á Vestfjörðum og Ströndum. Spáð er sunnan- og suðaustan 10-15 m/s og dálítilli rigningu eða súld, en hægara við vesturströndina. Síðan gengur í suðaustan 18-23 með talsverðri rigningu í nótt, fyrst suðvestanlands. Á meðfylgjandi veðurmynd sést hvernig búist er við að vindurinn verði um klukkan 5 í nótt. Þá verður bálhvasst á norðanverðu Snæfellsnesi (bleika svæðið), en einnig er mjög hvasst þar sem fjólubláa svæðið er á myndinni. Vindur snýst í suðvestan 8-15 m.sek með skúrum á morgun, en 18-23 og slydduél á norðvesturlandi framan af degi. Hiti 5 til 10 stig í dag, en kólnar heldur á Vesturlandi á morgun.
|