Kvenfélagasamband Íslands var stofnað árið 1930 sem sameiningar- og samstarfsvettvangur kvenfélaganna í landinu sem þá þegar voru orðin fjölmörg. Fyrsta kvenfélagið, Kvenfélag Rípuhrepps, var hins vegar stofnað árið 1869. Konur hafa síðan þá stofnað hundruð kvenfélaga með það að markmiði að bæta samfélagið, sérstaklega hvað varðar málefni barna, kvenna og fjölskyldna. Má segja að konur hafi með því tekið völdin í sínar hendur löngu áður en þær fengu aðgengi að stjórnkerfinu með kjörgengi og kosningarétti. Kvenfélagasamband Íslands hefur lýst 1. febrúar, ár hvert, „Dag kvenfélagskonunnar.”
|
Kvenfélagskonur um land allt munu halda upp á afmælið hvert með sínum hætti á afmælisárinu. Aðalverkefni afmælisársins er húfuverkefni sem snýst um að kvenfélagskonur prjóna húfur, sem allir nýburar sem fæðast hér á landi á afmælisárinu fá að gjöf.
Kvenfélögin innan KÍ eru nú tæplega 200 og starfa innan 17 héraðssambanda um land allt. Kvenfélagasambandið gefur út tímaritið Húsfreyjuna og rekur Leiðbeiningastöð heimilanna sem veitir gjaldfrjálsa símaráðgjöf og upplýsingamiðlun um flest það er lítur að heimilishaldi.
|