Í gær var undirritaður samningur milli Eyja- og Miklaholtshrepps annars vegar og Borgarbyggðar hins vegar um slit á byggðasamlagi um rekstur Laugagerðisskóla. Jafnframt var undirritaður þjónustusamningur milli sveitarfélaganna um að þeir nemendur úr Borgarbyggð sem búsettir eru í Kolbeinsstaðahreppi geti áfram stundað nám í Laugagerðisskóla. Eyja- og Miklaholtshreppur hefur því alfarið tekið við rekstri skólans.
Meðfylgjandi mynd tók Svanur Guðmundsson í Dalsmynni af þeim Páli Brynjarssyni sveitarstjóra Borgarbyggðar og Eggerti Kjartanssyni oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps við undirritun samningsins.
|